Á vef Financial Times, ft.com er að finna grein um Pompei norðursins eða Eldheima og safnbygginguna sem verið er að reisa. Blaðamaður FT Caroline Eden kom hingað til lands og heimsótti Vestmannaeyjar en í grein sinni líkir hún safninu við það að ferðast aftur í tímann, á íslenska vegu. �?annig verði hægt að skyggnast inn í líf Eyjaskeggja á safninu með því að skoða hús, sem grafið var upp úr vikrinum en safnið er byggt utan um húsið.