Fimleikafélagið Rán tók þátt í Vormóti Gróttu
Ásdís, Sigrún Arna, Margrét Perla, Saga Margrét, Inga Lind, María, Selena og Sunneva Björt fengu silfurverðlaun á mótinu.

Fimleikafélagið Rán tók þátt í Vormóti yngri flokka í hópfimleikum síðastliðna helgi. Mótið var haldið af fimleikadeild Gróttu og tóku 503 iðkendur úr 11 fimleikafélögum þátt.

Á laugardeginum kepptu stelpur í 4. flokki (4. og 5. bekkur) og lentu þær í öðru sæti. Frábær árangur hjá þeim.

Á sunnudeginum kepptu stelpur í 5. flokki (3. bekkur). Þær stóðu sig allar frábærlega og fengu allir í 5. flokki þáttöku verðlaun að móti loknu.

Þjálfarar stelpnanna eru Sigurbjörg Jóna Ísfeld Vilhjálmsdóttir og Kristín Laufey Sæmundsdóttir og þeim til aðstoðar eru Rakel Rut Rúnarsdóttir og Tinna Mjöll Frostadóttir.

 

Nýjustu fréttir

Hátt í 50 manns við síldarvinnslu hjá VSV
Kvörtun um stöðu ferjusamgangna fékk ekki frekari meðferð
Uppfært: Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Minni makrílútflutningur vegur þungt í samdrætti septembermánaðar
Subsea7 viðurkennir mistök við útlagningu vatnslagnar
Fermetraverð í fjölbýli í Eyjum hækkað um 81%
Fjölbreytt októberblað með sérblaði um Kveikjum neistann
Lífshagsmunir gegn græðgishagsmunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.