Fiskaðist vel yfir nóttina
Vestmannaey TMS 20250923 081501
Vestmannaey VE landar í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði í Eyjum í gærmorgun að loknum fyrsta túr eftir Þjóðhátíð. Túrinn var innan við þrjá sólarhringa og það var einungis verið að veiðum í rúman sólarhring.

Egill Guðni Guðnason skipstjóri var ánægður. „Þetta voru um 45 tonn af ýsu sem fengust austur á Höfða. Það fiskaðist vel yfir nóttina en það var hins vegar lítið að hafa þegar bjart var orðið. Við hér um borð erum afskaplega sáttir við þetta og getum ekki verið annað,” sagði Egill Guðni.

Vestmannaey hélt til veiða á ný um hádegi í gær, að því er segir í frétt á vef Síldarvinnlunnar.

Nýjustu fréttir

Saltfiskur í forgrunni hjá félögum VSV á Conxemar
Cornelia Hermansson gengur til liðs við ÍBV
Íslandsbanki varar við svikasímtölum
Tölum saman í FÍV á morgun
Útflutningur eldisafurða kominn í tæpan 51 milljarð
Sigurbergur ráðinn tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi
Í höfn og á hafi – myndasyrpa
Málþing, súpa og spjall
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.