Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum (FÍV) hefur hlotið sína þriðju viðurkenningu fyrir árið 2025. Í dag var tilkynnt um að skólinn hafi lent í 3. sæti í flokki lítilla ríkisstofnana í könnuninni “Stofnun ársins 2025”. Heildareinkunn skólans var 4,791, sem telst afar góður árangur og staðfestir sterka stöðu hans meðal opinberra vinnustaða.
Niðurstaðan endurspeglar öfluga menningu innan skólans þar sem traust, fagmennska og góð samvinna starfsfólks eru í forgrunni. Slík menning skapar jákvæða umgjörð sem styður nemendur bæði í námi og líðan á hverjum degi og styrkir starfsemi skólans í heild.
Viðurkenningin er – eins og áður segir – sú þriðja sem FÍV hlýtur fyrir árið 2025. Í lok síðasta árs hlaut skólinn Íslensku menntaverðlaunin, auk þess að fá Fréttapýramídann frá Eyjafréttum, sem veittur er fyrir eftirtektarverðan árangur í samfélaginu.
Þessi árangur undirstrikar að markviss uppbygging, jákvæð vinnustaðamenning og metnaður í skólastarfi skila sér – bæði til starfsfólks og nemenda – og staðsetja Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum meðal þeirra stofnana sem þykja fyrirmynd á landsvísu. Til hamingju, allir í FÍV.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.