Fjögur verkefni styrkt af Sparisjóði Vestmannaeyja
Venju samkvæmt, voru styrkir og viðurkenningar úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja afhentir í dag í húsakynnum sjóðsins við Bárustíg. Styrktar- og menningarsjóður var stofnaður til minningar um �?orstein �?. Víglundsson, fyrrverandi Sparisjóðsstjóra en þetta er í tuttugasta og sjötta skipti sem úthlutað er úr sjóðnum. Að þessu sinni voru fjögur verkefni eða félög styrkt og hlutu þau öll viðurkenningu og fjárhagslegan stuðning úr sjóðnum. Hópur áhugamanna um að gera upp Tuxham aðalvélina sem dreif dæluna í grafskipinu Vestmannaey fékk styrk og viðurkenningu fyrir sitt framtak, sömuleiðis Báta- og tækjasafn �?órðar Rafns Sigurðssonar og eiginkonu hans Ingigerðar R. Eymundsdóttur. Safnahús Vestmannaeyja fékk styrk og viðurkenningu vegna þess að 100 ár eru frá fæðingu Ása í Bæ á næsta ári og síðast en ekki síst fékk Stjörnufræðifélag Vestmannaeyja styrk og viðurkenningu úr sjóðnum.
Eftir að búið var að afhenda viðurkenningarnar, tók �?órður Rafn til máls og tilkynnti að þau hjónin hafi ákveðið að afhenda fjárhagslega hluta viðurkenningarnnar til Styrktarsjóði Landakirkju til að aðstoða þá sem minna mega sín í bæjarfélaginu.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.