Fjölmargir fóru í gamlársgöngu
Gamlarsganga Hopm Opf 24
Smellt var í hópmynd rétt fyrir brottför. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Í morgun var árleg ganga/hlaup til styrktar Krabbavörn Vestmannaeyjum. Þátttakan var mjög góð og veður ágætt til útivistar þrátt fyrir smá frost og snjó. Gengið var frá Steinsstöðum og endað á Tanganum þar sem boðið er upp á heita súpu og brauð.

Að sögn Hafdísar Kristjánsdóttur gekk gangan mjög vel. „Það mættu 86 manns í súpu og brauð samanber 56 í fyrra.” Hafdís telur að safnast hafi nálægt 1,4 milljónum, en öll innkoma rennur til Krabbavarnar í Vestmannaeyjum. Hafdís vill koma á framfæri þökkum til allra sem lögðu hönd á plóg.

Enn má styðja við Krabbavörn í Eyjum. Reikningsnúmer er 582-14-350050. Kt.651090-2029.  Myndasyrpu frá hlaupinu má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Þorskurinn eltir síldina fyrir austan
Bókasafnið – liðsfélagi í Kveikjum neistann
Óvenjulegir tónleikar í sundlauginni – myndir
Stjórnendur Herjólfs gestir á laugardagsfundi í Ásgarði
Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.