Fjölmenni við opnun sýningarinnar "Ertu héðan?" (myndir)
Það var margt um manninn þegar sýningin “Ertu héðan?” opnaði á laugardaginn í KFUM & K húsinu. Sýningastjórinn er Vala Pálsdóttir en sýningin er afurð meistararitgerðar hennar frá Listaháskóla Íslands og er útskriftarverkefnið hennar frá skólanum. Í ritgerðinni veltir Vala upp þeirri hugmynd að Vestmannaeyjabær taki að sér að halda utan um störf og ævi Júlíönu Sveinsdóttur. „Ég hef lengi verið aðdáandi verka Júlíönu en því miður er að aðgengi að verkum hennar mjög takmarkað,“ segir Vala. “Júlíana er einn af frumkvöðlum íslenskrar myndlistar.
Sýningin verður opin alla daga kl. 14 – 17 frá 9. apríl til og með páskasunnudegi 17. apríl. Sýningin verður einnig opin eftir samkomulagi og er áhugasömum velkomið að hafa samband við Völu Pálsdóttur sýningarstjóra: valap20@lhi.is
Aðgangur að sýningunni er ókeypis og öllum opinn.
Samkomuhús KFUM & K stendur við Vestmannabraut 5 en þar hélt Júlíana Sveinsdóttir fyrstu einkasýningu sína árið 1926.
Gönguferð á slóðir Júlíönu í Eyjum um Páskana
Í tengslum við sýninguna býður Vala Pálsdóttir öllum áhugasömum í gönguferð um Vestmannaeyjar þar sem hún segir frá Júlíönu Sveinsdóttur og þeim slóðum sem hún málaði og varð fyrir áhrifum á. Gönguferðin hefst við KFUM-húsið kl. 11:00 bæði á Skírdag og Páskadag, tekur um klukkustund og endar á sama stað.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði á Akureyri
Í dag eru 84 íbúðir í byggingu
ÍBV sækir KA heim í dag
Eyjamenn í eldlínunni
Konudagurinn er í dag
Jafnt hjá ÍBV og Fram í Lengjubikar kvenna
Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
ÍBV vann Suðurlandsslaginn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.