Fjórir Vestmannaeyingar í byrjunarliði Íslands á Algarve
Lokaleikur Íslands á Algarve Cup að þessu sinni verður gegn Kína. �?jóðirnar mættust síðast á Sincere Cup í Kína í október sl. og endaði sá leikur með 2-2 jafntefli þar sem Fanndís Friðriksdóttir og Katrín Ásbjörnsdóttir skoruðu mörk Íslands. Alls hafa þjóðirnar mæst 6 sinnum á Algarve Cup áður og hefur Ísland haft betur í 4 viðureignum en Kína í 2. �?að má búast við hörkuleik í kvöld en þjóðirnar leika um 9. sæti á mótinu.
Freyr Alexandersson hefur valið byrjunarliðið fyrir leikinn þar sem hann gerir 9 breytingar frá leiknum á móti Spáni. Ásamt Sigríði Láru Garðarsdóttur, leikmanni ÍBV, þá eru þrír aðrir leikmenn í byrjunarliði íslenska liðsins sem eru uppaldir í Eyjum en þeir eru Fanndís Friðriksdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir og Berglind Björg �?orvaldsdótir.
Byrjunarliðið:
Mark: Guðbjörg Gunnarsdóttir
Vörn: Rakel Hönnudóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir og Thelma Björk Einarsdóttir
Miðja: Guðmunda Brynja �?ladóttir, Málfríður Erna Sigurðardóttir, Sigríður Lára Garðarsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir
Sókn: Margrét Lára Viðarsdóttir og Berglind Björg �?orvaldsdóttir
Leikurinn hefst kl. 18:30 og verður sýndur beint á R�?V2

Nýjustu fréttir

Minni makrílútflutningur vegur þungt í samdrætti septembermánaðar
Subsea7 viðurkennir mistök við útlagningu vatnslagnar
Fermetraverð í fjölbýli í Eyjum hækkað um 81%
Fjölbreytt októberblað með sérblaði um Kveikjum neistann
Lífshagsmunir gegn græðgishagsmunum
Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Kótilettur til góðs í Höllinni
Æfðu viðbrögð við eldsvoða í Kjarnanum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.