FH kemur í heimsókn

Í dag klukkan 18:30 mætast ÍBV og FH í Olís deild karla í handbolta þegar 20. umferðin fer fram. ÍBV er í fjórða sæti deildarinnar með nítján stig en FH er áttunda sæti með sextán stig. (meira…)
�?skudagsgleði

�?að viðraði vel í Eyjum á �?skudaginn og því mátti sjá ansi margar syngjandi furðuverur um allan bæ. Við á Eyjafréttum fengum margar skemmtilegar heimsóknir og fallegur söngur ómaði hér í allan dag. Við þökkum öllum þeim flottu krökkum sem kíktu til okkar fyrir komuna í dag. Hér má sjá myndir frá deginum. (meira…)
Uppskeruhátíð ÍBV og Vestmannaeyjabæjar í Höllinni í kvöld

Í kvöld klukkan 20:00 verður uppskeruhátíð Íþróttabandalags Vestmannaeyja í Höllinni. �?ar verða útnefndir bæði íþróttamaður Vestmannaeyja og íþróttamaður æskunnar fyrir árið 2015. �?á veita aðildarfélögin sínu fólki viðurkenningar auk þess sem landsliðsfólk síðasta árs verða veittar viðurkenningar. Við hvetjum bæjabúa til að sækja hátíðina í Höllinni í kvöld. (meira…)
�?skudagurinn í gegnum tíðina

Í dag er �?skudagurinn og má því búast við alls kyns syngjandi furðuverum á sveimi um allan bæ. �?að er alltaf líf og fjör á Eyjafréttum á �?skudaginn og það verður vonandi ekki síðra í dag en síðustu ár. Við tókum saman nokkrar �?skudagsmyndir sem hafa birst í blöðunum okkar í gegnum tíðina. (meira…)
Iða Brá Benediktsdóttir ráðin framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs Arion banka

Iða Brá Benediktsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Iða Brá tekur við starfinu af Halldóri Bjarkar Lúðvígssyni sem nýverið hætti störfum hjá bankanum. Iða Brá er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með MSc í fjármálum frá Rotterdam Shcool of Management í Hollandi og með próf í verðbréfaviðskiptum. Iða Brá hefur starfað hjá […]
Eldheimar keppa um Eyrarrósina

Menningar- og fræðslusetrið Eldheimar í Vestmannaeyjum, alþjóðlega listahátíðin Ferskir vindar, sem fram fer í Garði, og Verksmiðjan á Hjalteyri, listamiðstöð með sýningarsali og gestavinnustofur í gamalli síldarverksmiðju Kveldúlfs við Eyjafjörð keppa um Eyrarrósina í ár. Í ársbyrjun var tilkynnt hvaða tíu verkefni prýða Eyrarrósarlistann í ár. �?að varð svo niðurstaða valnefndar Eyrarrósarinnar 2016 að að […]
Ekki um einelti að ræða

Eins og fram kom í tilkynningu frá ÍBV Íþróttafélagi í síðasta mánuði voru kallaðir til utanaðkomandi og hlutlausir sérfræðingar til að gera formlega eineltisathugun og leiðbeina félaginu um framhaldið vegna gruns um einelti sem upp kom í æfingahópi félagsins í handbolta karla. Sérfræðingarnir hafa nú skilað stjórn félagsins skýrslu þar sem meginniðurstaðan er þessi: ”Niðurstöður […]
Nýr sængurfatnaður í Herjólfi

Í síðustu viku var tekinn í notkun nýr sængurfatnaður í Herjólfi. Síðasta haust var ákveðið að endurnýja sængur, kodda, sængurver og lök en afhending dróst af óviðráðanlegum orsökum. Eimskip endurnýjaði sængur og kodda en �?vottahúsið Straumur í Vestmannaeyjum sem er þjónustuaðili líns og þvottar í Herjólfi endurnýjaði sængurfatnaðinn og lök. (meira…)
Hópleit að ristilkrabba á næsta ári

Stefnt er að því á næsta ári að skima fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi hjá fólki á aldrinum 60-69 ára. Í dag undirrituðu Kristján �?ór Júlíusson, heilbrigðisráðherra og Kristján Oddsson, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands samkomulag um undirbúning þessa. Velferðarráðuneytið leggur 25 milljónir króna til verkefnisins og Krabbameinsfélagið 20 milljónir, en www.ruv.is greindi frá Krabbamein í […]
Bónus oftast með lægsta verðið

Bónus í �?gurhvarfi var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í átta verslunum á höfuðborgarsvæðinu fimmtudaginn 4. febrúar. Bónus var lægst í 81 tilviki, Krónan í 23 tilfellum og Fjarðarkaup 16. Hæsta verðið var oftast að finna í Iceland Engihjalla eða í um þriðjungi tilvika. Munurinn á hæsta og lægsta verði vöru […]