�?rslitaleikur Fótbolta.net mótsins í kvöld

Í kvöld klukkan 20:00 hefst úrslitaleikur Fótbolta.net mótsins á milli KR og ÍBV í Egilshöllinni. Langt er síðan ÍBV hefur gengið svona vel í móti á undirbúningstímabilinu eða nánar tiltekið árið 2011 þegar liðið spilaði til úrslita í sama móti gegn Keflavík þar sem leikurinn tapaðist í vítaspyrnukeppni. Gott gengi ÍBV á þessu móti er […]

Samfylkingin fundar í Vestamannaeyjum

�?ingmenn Samfylkingarinnar sækja Vestmannaeyinga heim næstkomandi miðvikudag 3. febrúar. �?au Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar og Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Suðurkjördæmis, ljúka heimsókn sinni með opnum fundi í Alþýðuhúsinu kl. 20 ásamt bæjarfulltrúum Eyjalistans Stefáni �?skari Jónassyni og Auði �?sk Vilhjálmsdóttur. Til umræðu verða samgöngur, atvinnulíf og byggðamálefni og eru allir áhugasamir boðnir velkomnir. (meira…)

16,7 % lækkun á fasteignaskatti hjá Vestmannaeyjabæ

Álagningarprósenta fasteignaskatts er óbreytt hjá 10 sveitarfélögum af 15 en þetta kemur fram í verðlagseftirliti ASÍ. Tvö þeirra eru að hækka fasteignaskattinn en þrjú lækka. Hækkunin í Hafnarfirði er 21,4% og Fjarðarbyggð 4,2%. �?au sveitarfélög sem lækkuðu álagninguna á milli ára eru Vestmannaeyjar um 16,7%, Garðabær um 2,1% og Kópavogur um 1,9%. �?egar tillit hefur […]

Vestmannaeyjabær með hæstu sorphirðugjöldin þrátt fyrir lækkun í ár

Í Verðlagseftirlit ASÍ þar sem könnuð eru útgjöld hjá 15 særtstu sveitarfélögunum kemur fram að Eyjamenn eru með hæstu Sorphirðugjöldin. Sorphirðu- og sorptengd gjöld eru innheimt sem föst upphæð á hverja íbúð eða fjölda tunna við hús. Aðeins hjá Reykjanesbæ er sama verðlag og í fyrra. Í Kópavogi, Akureyri og Vestmannaeyjum lækkar gjaldskráin á milli […]

Svekkjandi tap í spennandi leik

Stjarnan sigraði ÍBV með einu marki, 30-29, þegar liðin mættust í Olís deild kvenna í dag í Garðabæ. Leikurinn var jafn framan af en einnig mjög hraður og lítið um góðar varnir. Lið ÍBV seig smám saman fram úr Stjörnunni en mest náðu þær þriggja marka forskoti. ÍBV spilaði jafnan með auka mann í sókninni […]

Vestmannaeyjabær hækkar útsvarsprósentu en fullnýtir ekki

Verðlagseftirlit ASÍ hefur kannað álagningu útsvars fyrir árið 2016 hjá 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins. �?tsvarsprósentan er óbreytt frá árinu 2015 hjá 14 sveitafélögum af 15 en Reykjanesbær er með 3,62% álag á útsvarið. Aðeins Vestmannaeyjabær hækkar útsvarið á milli ára. �?ll sveitarfélögin sem skoðuð voru nema eitt eru með sömu útsvarsprósentu og 2015. Aðeins Vestmannaeyjabær […]

Samkomulag milli Rangárþings eystra og HS Veitna

Gert hefur verið samkomulag milli Rangárþings eystra og HS Veitna um umsjón Vestmannaeyjaveitu sem HS Veitur reka. Samkomulagið nær til Vestmannaeyjaveitu frá uppsprettulind í landi Syðstu-Merkur að tengingu neðansjávarleiðslu og er dælustöð á Landeyjarsandi meðtalin. Samkomulagið er tilkomið m.a. vegna þess að Gunnar Marmundsson, starfsmaður HS Veitna á Hvolsvelli, lætur nú af störfum sökum aldurs […]

Laugardagsfundur með Ragnheiði Elínu Árnadóttur Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Laugardaginn 30. janúar verður fyrsti laugardagsfundur ársins, fundurinn verður í Ásgarði og hefst hann kl. 11 gestur fundarins verður Ragnheiður Elín Árnadóttir. Laugardagsfundir verða í Ásgarði kl. 11 á laugardögum fram að páskum og verða þeir í bland, kaffispjall og fundir með gestum. Dagskrá þeirra verður auglýst síðar. Allt sjálfstæðisfólk velkomið. Stjórnir sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum. […]

Agnar Smári til ÍBV

ÍBV hefur náð samkomulagi við Agnar Smára Jónsson um að leika með liðinu út keppnistímabilið. Agnar hefur spilað með danska úrvalsdeildarliðinu Mors-Thy frá síðasta keppnistímabili. ÍBV er í skýjunum með að ná í þennan pilt aftur enda færði hann ,ásamt liðinu öllu, Eyjamönnum frábæran árangur. Árangur sem allir Eyjamenn fengu að njóta. Við munum að […]

Stjörnukvöld á laugardaginn

Laugardaginn 30. janúar nk. verður Stjörnukvöld í Akóges. Allar Stjörnur (konur) eru velkomnar. Í fyrra voru keyptar spjaldtölvur handa GRV og í ár stendur til að kaupa blöðruskanna fyrir Hraunbúðir, dvalarheimili aldraðra í Vestmannaeyjum. Mæting er kl. 14:30-16:30 við Akóges og svo er kvöldverður og skemmtun um kvöldið, þá opnar húsið kl. 19:30. Miðakaupin eru […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.