Sextán sjúkraflutningar á tólf tímum á Suðurlandi

Álagið hefur verið það mikið hjá sjúkraflutningum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands í dag að neyðst hefur til að kalla út aukamannskap og fá aðstoð hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. �?etta segir Styrmir Sigurðsson, bráðatæknir og yfirmaður sjúkraflutninga við stofnunina, í samtali við fréttastofu. �??Klukkan fjögur í gær var búið að fara í sextán verkefni síðan hálf fimm […]
Ein líkamsárás var kærð í liðinni viku

�?að var í nógu að snúast hjá lögreglu í liðinni viku vegna hinna ýmsu mála. Skemmtanahald helgarinnr gekk ágætlega fyrir sig og fá útköll á veitingastaði bæjarins. Ein líkamsárás var kærð í liðinni viku en árásin átti sér stað á skemmtistað aðfaranótt 22. janúar sl. �?arna varð maður fyrir árás annars manns með alvarlegum afleiðingum […]
Ný aflaregla minnkar afla

Ef gamla aflareglan í loðnu væri í gildi hefði heildarkvótinn verið 235 til 250 þúsund tonn í ár í stað 170 þúsund tonna sem heimilað verður að veiða samkvæmt nýju aflareglunni sem nú reynir á í fyrsta skipti. Kvótinn er því 65-80 þúsund tonnum minni en samkvæmt gömlu reglunni. Meiri varúðar gagnvart loðnustofninum gætir í […]
Bónus opnar brátt

Bónus stefnir á að opna nýja verslun í Vestmannaeyjum laugardaginn 6. febrúar næstkomandi gangi allt að óskum, að sögn Guðmundar Marteinssonar, framkvæmdastjóra Bónuss. Um verður að ræða hefðbundna opnun Bónuss með sérstökum opnunartilboðum. �?etta er fyrsta Bónusverslunin sem opnuð er í Vestmannaeyjum. Hún verður með svipuðu sniði og Bónus á Selfossi og tæplega 1.200 fermetra […]
Norsk landsliðskona til Eyja

Norska knattspyrnukonan Lisa-Marie Woods er gengin til liðs við úrvalsdeildarlið ÍBV og leikur með því á komandi keppnistímabili. Woods er 31 árs, leikur sem miðjumaður og á að baki 23 landsleiki fyrir Noreg en þrettán þeirra lék hún árið 2010 þegar norska liðið bjó sig undir lokakeppni HM árið 2011. Hún missti hinsvegar af þeirri […]
Ríkið sýknað af kröfu Vinnslustöðvarinnar

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun ríkið af kröfu Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum um endurgreiðslu á sérstöku veiðigjaldi sem lagt var á sjávarútvegsfyrirtæki á fiskveiðiárinu 2012-2013. �?etta staðfestir Ragnar H. Hall, lögmaður Vinnslustöðvarinnar, í samtali við mbl.is en fyrirtækið hafði farið fram á endurgreiðslu upp á rúmlega hálfan milljarð króna. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það […]
Landeyjahöfn mikilvæg komi til rýmingar

�??Ekki er hægt að ganga að því vísu að fiskiskipaflotinn sé í höfn ef eitthvað kemur upp á og rýma þarf bæinn líkt og gerðist í gosinu 1973,�?? segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja. Á laugardaginn kynnti Páley Borgþórsdóttir, lögrelgustjóri lögregluumdæmisins í Vestmannaeyjum, sérstaka viðbragðs- og rýmingaráætlun fyrir bæinn, að því er fram kemur í Morgunblaðinu […]
�?jóðhátíðarmyllunni komið fyrir á Austurbæjarbíói

Nemendur Verslunarskólans gerðu sér lítið fyrir í dag og hífðu myllu upp á húsnæði Austurbæjarbíós. �?ar stendur til að setja upp söngleikinn Moulin Rouge eða Rauðu Mylluna. Myllan er landsfræg en þeir sem hafa farið á �?jóðhátíð í Eyjum ættu að kannast vel við hana. Í samtali við Vísi sagði Kristján �?ór Sigurðsson, formaður Nemendafélags […]
�??�?etta verður síðasta árið mitt�??

Florentina Stanciu stendur vörð í íslenska handboltamarkinu og hjá Stjörnunni. Hún er ein besta handboltakona landsins og hefur verið einn besti markmaður Evrópu. En Florentina hefur tekið erfiða ákvörðun. Hún ætlar með fjölskyldu sína aftur til Rúmeníu og kveðjur handboltann �?? og Ísland �?? með miklum trega. Hún segist vita að það er tímabært. Hún […]
Góður sigur á ÍR

ÍBV og ÍR mættust í Olís deild kvenna í dag. ÍR-ingar byrjuðu betur og komust í 1-4, en ÍBV jafnaði metin í 5-5 með marki frá Gretu K. �?egar fyrri hálfleikur var hálfnaður komst ÍBV yfir, 8-7, þá þéttist vörn ÍBV og stelpurnar sigu fram úr og skorðuðu mörg auðveld hraðaupphlaups og annars tempó mörk. […]