Forsendur dómsins verða yfirfarnar
radhustrod_ráðhús_merki_cr
Ráðhús Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vestmannaeyjabær segir að forsendur dóms Héraðsdóms Suðurlands í vatnslagnarmálinu verði nú skoðaðar vandlega áður en tekin verði ákvörðun um næstu skref. Bærinn segir dóminn viðamikinn og varða flókið lögfræðilegt álitaefni en tjáir sig að öðru leyti ekki um niðurstöðuna að svo stöddu. Tilkynningu bæjaryfirvalda má lesa í heild sinni hér að neðan.

Dómur kveðin upp vegna tjóns á vatnsleiðslu

Í gær var kveðinn upp dómur hjá Héraðsdómi Suðurlands vegna tjóns sem varð á vatnsleiðslu bæjarins þegar akkeri Hugins VE 55 lenti í leiðslunni þann 17. nóvember 2023. Stefndu, Vinnslustöðin, Huginn og VÍS tryggingar, voru sýknuð af kröfum bæjarins en málskostnaður var felldur niður. Dómurinn er viðamikill og varðar flókið lögfræðilegt álitamál. Verða forsendur hans skoðaðar vandlega áður en næstu skref í málinu verða ákveðin en frestur til að taka ákvörðun um ákvörðun er fjórar vikur. Mun Vestmannaeyjabær ekki tjá sig frekar um niðurstöðu dómsins að svo stöddu.“

Þessu tengt: Vinnslustöðin, Huginn og VÍS sýknuð í vatnslagnarmálinu

Nýjustu fréttir

Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.