Forsetinn leit víða við

Guðni Th. Jóhannesson, forseti kom víða við í heimsókn sinni til Vestmannaeyja 23. og 24. janúar en stóra tilefnið var að þann 23. janúar var þess minnst að 50 ár voru frá upphafi Heimaeyjargossins 1973.

Guðni var viðstaddur minningarfund bæjarstjórnar í viðhafnarsal Ráðshússins þar sem hann ávarpaði fundinn. Heimsótti Framhaldsskólann og dagdvöl aldraðra á Hraunbúðum og Þekkingarsetrið.

Hitti nemendur Grunnskólans sem lásu gostengda texta. Tók nokkrar lykkjur með konum sem prjóna veifur á Bókasafni í tengslum við goslokahátíð í sumar.

Guðni og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra heimsóttu Hraunbúðir. Með í för voru Silja Elsabet söngkona og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari sem fluttu nokkur lög.

Guðni og Katrín voru í tilkomumikilli blysför frá Landakirkju að Eldheimum og bæði fluttu þau ávörp í Eldheimum sem var hápunktur minningardagsins.

Daginn eftir kynnti forsetinn sér átakið Kveikjum neistann í Grunnskólanum og heimsótti fyrsta og annan bekk og kíkti við á kennarastofunni.

Þess má geta að Guðni byrjaði daginn með því að hlaupa hring með Magnúsi Bragasyni.

 

Myndatextar:

Íris sýnir Guðna hvernig á að taka í lykkju. Mynd Erna Georgsdóttir.

Þær voru kampakátar prjónakonurnar í Safnahúsi eftir heimsókn Guðna forseta.

Í Sagnheimum á efri hæðinni voru myndverk eftir nemendur í leikskólum og Grunnskólanum sem voru mjög tilkomumikil.

Íris bæjarstjóri og listakonurnar Helga Bryndís og Silja Elsabet. Mynd Erna Georgsdóttir.

Guðrún Jóhannesdóttir, Rúna tók vel á móti Guðna á Hraunbúðum eins og aðrir þar á bæ. Mynd Erna Georgsdóttir.

Katrín forsætisráðherra á spjalli við fólk á Hraunbúðum. Mynd Erna Georgsdóttir.

 

 

Nýjustu fréttir

Birgir Nielsen um tónlistina og lífið á skólabekk  
Ráðið segir tafir sýna mikilvægi betri undirbúnings
Opnunarhátíð Sea Life – myndasyrpa
Ísfélagið á vörusýningu á Englandi
Perlað fyrir von og samstöðu í Höllinni í dag
ÍBV sigraði Stjörnuna í Eyjum
Könnun sýnir breytt fylgi flokka í Eyjum
Ræddu kvartanir og þjónustu við fulltrúa Terra

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.