„Frábærar fréttir frá Vestmannaeyjum!“
Lundi Brenna 24
Lundinn í Dalfjalli virðir fyrir sér brennuna á Fjósakletti. Myndin var tekin um helgina. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

„Seinna lundarallinu lauk seint í gærkveldi. Frábærar fréttir frá Vestmannaeyjum!“ Svona hefst facebook-færsla á síðu Náttúrustofu Suðurlands. Þar segir jafnframt að  árið í ár sé jafn gott ár og 2021, sem er það besta í viðkomu á þessari öld. Þau eru þó ekki eins, færri fuglar urpu nú (ábúð 76% egg/holu), en hámarks varpárangur (91% eggja eru nú stórar pysjur) vegur muninn upp. Þær fljúga á svipuðum tíma og árið 2021, “á eðlilegum tíma”, segir í færslunni.

Staðfestir þetta sögur lundakarla um mikið flug lundans í sumar og að hann sé að bera síli í pysjuna af miklum móð. Það er því von um betri tíð og vísbendingar um breyttar og hagstæðari aðstæður í sjónum fyrir sílið sem er aðalfæða lundans.

Nýjustu fréttir

Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.