Framhald bólusetninga og sýnatakna vegna covid í Vestmannaeyjum

Bólusetningar vegna covid

Vegna áframhaldandi covid faraldurs mælir sóttvarnarlæknir með 4 bólusetningu fyrir 80 ára og eldri og að þeir sem ekki eru fullbólusettir ljúki bólusetningum.

Bólusetningar hafa gengið vel í Vestmannaeyjum og hefur starfsfólk heilsugæslunnar notið ómetanlegrar aðstoðar frá starfsfólki Íþróttahúss,  Rauða kross félaga , starfsfólki grunn og leikskóla og félaga björgunarsveitar , fjölmiðla í Vestmannaeyjum auk annara heilbrigðisstarfsmanna við bólusetningar  Viljum við þakka þeim kærlega fyrir.

Framvegis verður bólusett á heilsugæslunni og er fólk sem óskar eftir bólusetningu beðið um að skrá sig í síma 4322500.  Sjá nánari auglýsingu í bæjarblöðum.

Sýnatökur vegna covid  19 verða framvegis tvisvar í viku ,  þriðjudaga og fimmtudaga kl 9:30 og getur fólk skráð sig í gegn um Heilsuveru.   Að beiðni sóttvarnarlæknis eru tekin PCR próf og er tilgangurinn að fylgjast með útbreiðslu covid 19 og hvort ný afbrigði komi fram.

Nýjustu fréttir

Rafmagnslaust: Stór truflun í kerfinu – uppfært
Annríki hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja í fárviðri
Hjalti læknir og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Stormur á Stórhöfða
Sterkt samfélag byggir á trausti og samvinnu
Mikilvægasta skipið
Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.