Fundað í dag
Boðað hefur verið til fundar í kjaradeilu undirmanna á Herjólfi í dag klukkan 11:30. Síðasti fundur var síðastliðinn föstudag og miðað við þær fréttir sem voru eftir þann fund, þokast lítið áfram í sáttaátt og engin ástæða til bjartsýni. Verkfall undirmanna hófst miðvikudaginn 5. mars en í raun hefur verið um yfirvinnubann til þessa, þ.e. að undirmenn vinna ekki frá klukkan 17 á daginn til klukkan 8 morguninn eftir. Ef ekki verður samið í vikunni, leggja undirmenn hins vegar niður störf á föstudögum líka. �?á verða engar ferðir föstudaga, laugardaga og sunnudaga og aðeins ein ferð hina dagana á meðan ekki er fært í Landeyjahöfn. Ef fært er í Landeyjahöfn, eru ferðirnar hins vegar þrjár.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.