Fyrsti bikartitillinn í hús í dag
ÍBV vann í dag fyrsta bikartitilinn af þremur mögulegum þegar 4. flokkur kvenna lagði KA/�?ór að velli í úrslitaleik í Laugardalshöll. �?hætt er að segja að í leiknum hafi mæst stálin stinn enda var leikurinn jafn og spennandi allan tímann og sjaldnast munaði meira en einu eða tveimur mörkum. ÍBV var yfir í hálfleik 11:9 og var svo þremur mörkum yfir þegar rúmar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. En þá fékk einn leikmaður ÍBV tveggja mínútna brottvísun og óhætt að segja að norðanstúlkur hafi nýtt liðsmuninn vel því þær náðu að jafna fyrir leikslok og því varð að grípa til framlengingar.
KA/�?ór var ívið sterkari í fyrri hálfleik í framlengingunni og voru einu marki yfir og gátu komist tveimur mörkum yfir í upphafi þess síðari en Inga Hanna Bergsdóttir, markvörður ÍBV varði þá vítaskot KA/�?órs. �?að gaf tóninn, Eyjastelpur fylgdu þessu eftir og unnu að lokum 23:22. Mikil spenna var þó í lokin því KA/�?ór fékk síðustu sóknina en Eyjavörnin hélt og stelpurnar fögnuðu vel í leikslok, ásamt fjölmörgum stuðningsmönnum sínum sem hvöttu þær vel í leiknum.
Erum bestar
�??Við töpuðum fyrir þeim fyrir tveimur vikum með einu mark en voru þá yfir allan tímann og það var nóg til að peppa stelpurnar upp fyrir þenna leik,�?? sagði Unnur Sigmarsdóttir, þjálfari ÍBV í leikslok. �??�?að var mikil spenna í lokin en þetta er alveg yndislegt enda ekki hægt að lýsa þeirri tilfinningu að koma heim til Eyja með bikar. �?etta eru rosalega flottar stelpur. �?ær urðu Íslandsmeistarar í fyrra, eru bikarmeistarar núna og ætla að gera sitt besta til að verja Íslandsmeistaratitilinn í voru.�??
Inga Hanna Bergsdóttir, markvörður ÍBV var valin maður leiksins og ekki að ósekju, enda varði hún alls 20 skot í leiknum, þar af þrjú vítaskot KA/�?órs. �??�?etta var mjög stressandi. �?etta var jafnt allan tímann en við ætluðum að vinna þær núna og ekki tapa aftur. �?g var mjög stressuð í lokin en mér fannst þetta aldrei spurning,�?? sagði Inga Hanna í viðtali eftir leikinn.
Hversu góðar eru þið?
�??Við erum bestar.�??

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.