Fyrsti snjór ársins loksins fallinn í Eyjum
Börnin nutu þess að renna sér niður brekkuna á Stakkó í dag. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur.

Fyrsti snjór ársins lét loksins sjá sig í Vestmannaeyjum í dag eftir óvenju milt veðurfar það sem af er vetri. Þrátt fyrir að hávetur sé genginn í garð hefur veðrið verið með besta móti og snjóleysið því vakið athygli margra.

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, fangaði stemninguna í bænum í dag og má sjá myndasyrpu hans hér að neðan þar sem hvít slikja hefur lagst yfir eyjarnar.

Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands hefur kaldara heimskautaloft verið að færast yfir landið síðustu daga og er útlit fyrir að kuldinn nái hámarki á laugardag, þegar frost verður mest norðaustanlands. Eftir það er gert ráð fyrir að heldur dragi úr frosti, þó áfram verði talsvert kalt vel inn í næstu viku.

Á morgun er spáð fremur hægum norðlægum áttum og víða snjókomu norðanlands, en eftir hádegi gæti vindur aukist norðvestantil. Sunnan til á landinu verður að mestu bjart síðdegis.

Um helgina er útlit fyrir allhvasst eða hvasst veður víða vestanlands og eru jafnvel líkur á stormi með suðurströndinni þegar líða fer á helgina. Víða má búast við björtu veðri, en dálítil él eða snjókoma austantil og allra syðst. Þá eru einnig einhverjar líkur á éljum vestanlands, þó að úrkoman verði þar líklega fremur lítil.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.