Á morgun, fimmtudag tekur ÍBV á móti HK í Olísdeild karla. Fjórum umferðum er ólokið en ÍBV er í öðru sæti, í harðri toppbaráttu þar sem Haukar eru þremur stigum frá ÍBV í efsta sætinu en Valur er þremur stigum á eftir ÍBV í þriðja sæti. HK er hins vegar fallið en liðið er aðeins með þrjú stig eftir 17 leiki. Eyjamenn eru í góðri stöðu til að tryggja sér heimaleikjaréttinn í fyrstu umferð úrslitanna en til þess þarf ÍBV að verja annað sætið, og hugsanlega ræna því fyrsta af Haukum.
Róbert Aron Hostert hefur verið frábær fyrir ÍBV í vetur en hann sagði í samtali við blaðamann Eyjafrétta að leikurinn á morgun sé hættulegur. �??�?að reikna allir með því að við vinnum. Við erum ofar í deildinni og erum með sterkara lið að mínu mati þannig að ef við spilum af eðlilegri getu, þá vinnum við. En við verðum að vera á tánum, megum ekki sýna vott af vanvirðingu eða vanmati enda reikna ég með að HK verði erfiðir. �?eir eru fallnir og mæta því afslappaðir til leiks en með leikmenn sem vilja sanna sig fyrir nýjum þjálfara. �?etta verður erfiður leikur en okkar markmið er að vinna og bæta okkar leik jafnt og þetta fram að úrslitakeppninni.�??
Hverjar telurðu líkurnar á að halda öðru sætinu?
�??Í raun og veru erum við ekkert að horfa sérstaklega á það. Við horfum bara á næsta leik en ég neita því ekki að það væri gaman að halda öðru sætinu fyrir úrslitakeppnina. �?á fáum við fleiri leiki á okkar frábæra heimavelli, fyrir framan okkar frábæru stuðningsmenn. Við hugsum samt bara um einn leik í einu og einbeitum okkur bara að HK núna.�??
Danirnir í betra formi
Róbert yfirgefur herbúðir ÍBV að loknu tímabilinu en hann gerði á dögunum tveggja ára samning við danska úrvalsdeildarliði Mors-Thy. �??Miðað við það sem ég sá þegar ég var hjá þeim, þá er þetta stórglæsilegur klúbbur sem er á uppleið. �?eir eru með flotta umgjör, mjög góðan þjálfara og ég sá einn leik með liðinu og þeir eru góðir. �?g er fenginn til liðsins sem miðjumaður og mér finnst það vera ákveðið hrós enda er ég að spila í fyrsta sinn í þeirri stöðu hjá ÍBV.�??
Sérðu mikinn mun á dönsku og íslensku deildinni?
�??Handboltalega séð er kannski ekki mikill munur en líkamlegi þátturinn er betri hjá Dönunum. �?eir eru í mun betra formi og eru sterkari og það er sá þáttur sem ég þarf að bæta í sumar,�?? sagði Róbert en félagið er staðsett í bænum Mors, sem er í raun eyja nyrst á Jótlandi. �??�?að er reynar vegtenging út í eyjuna en bærinn er ekki mjög stór. Danmörk er samt þannig að það er ekki mjög langt á milli staða þannig að ég er spenntur fyrir því að flytja þangað út. �?að kitlaði reyndar að taka eitt sumar hérna á paradísareyjunni. �?g náði því ekki í fyrra því ég samdi það seint við ÍBV en hér hefur mér liðið mjög vel.�??
Er þetta rétti tíminn fyrir þig að stíga þetta skref, að fara í atvinnumennskuna?
�??Já ég held það. �?g er búinn að fresta því í tvö ár að fara út. �?g var á leiðinni út fyrir þetta tímabil en fékk þá freistandi tilboð frá ÍBV sem ég gat ekki hafnað. Nú var bara komið að því að drífa sig út og ég er mjög ánægður með liðið sem ég er á leið til. �?g vonast auðvitað líka til þess að komast með þessu lengra inn fyrir þröskuldinn hjá landsliðinu enda stefna held ég allir handboltamenn að því að komast í íslenska landsliðið. �?etta er góður stökkpallur fyrir mig fyrir komandi ár að fara til Mors-Thy og vonandi get ég kvatt ÍBV á viðeigandi hátt,�?? sagði Róbert að lokum.