Gera ráð fyrir allt að 110 íbúðum
longulag_ads_vestmannaeyjab
Löngulág. Ljósmynd/aðsend

Vestmannaeyjabær hefur nú boðað til íbúafundar og auglýsir einnig tillögu á vinnslustigi að breytingu aðalskipulags Vestmannaeyja 2015-2035 og nýtt deiliskipulag fyrir íbúðabyggð og leikskóla við Malarvöll.

Tillagan gerir ráð fyrir allt að 110 íbúðum í blandaðri byggð einbýlishúsa, raðhúsa, lítilla fjölbýla og stærri fjölbýlishúsa með lyftu. Gert er ráð fyrir bílakjallara fyrir raðhús og fjölbýli. Grænt svæði við Löngulág er varðveitt og hugað er að skjólgóðum og sólríkum dvalarsvæðum í byggðinni. Deiliskipulagið gerir einnig ráð fyrir 6-10 deilda leikskóla sem mögulegt er að byggja upp í áföngum.

Íbúafundur um fyrirhugaða uppbyggingu verður haldinn þriðjudaginn 11. júní klukkan 17:30 í Ráðhúsi Vestmannaeyja við Kirkjuveg 50.

Nánari upplýsingar um tillöguna má finna hér.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.