Glæsilegur fimm marka sigur á FH
Eyjamenn unnu í dag glæsilegan fimm marka sigur á FH í Hafnarfirði en lokatölur urðu 22.27 fyrir ÍBV. Staðan í hálfleik var 13:15 fyrir ÍBV en leikurinn átti upphaflega að fara fram í gær, laugardag. �?á var hins vegar ekkert ferðaveður en hluti af leikmannahópi ÍBV fór með Herjólfi í morgun, sem alla jafna telst ekki ákjósanlegur undirbúningur fyrir erfiða leiki. En Eyjapeyjar létu Herjólfsferð ekkert draga sig niður og unnu nokkuð sannfærandi eins og áður sagði.
Með sigrinum komst ÍBV upp í þriðja sæti deildarinnar, er með 12 stig eftir 10 leiki, jafn mörg og Fram sem hefur leikið 11 leiki. FH er í öðru sæti með 13 stig eftir 11 leiki en Haukar eru efstir með 17 stig eftir 11 leiki. �?etta var síðasti leikur Olísdeildarinnar í ár en næsti leikur ÍBV í deildinni er ekki fyrr en 25. janúar á næsta ári. Liðið á hins vegar eftir að spila gegn B-liði Hauka í bikarkeppninni og með því að leggja FH að velli í dag, tryggði ÍBV sér sæti í Deildarbikarkeppninni sem fer fram í Hafnarfirði um næstu helgi. �?ar mætir liðið einmitt FH í undanúrslitum en í hinum leiknum mætast Haukar og Fram.
�??Við vorum allir staðráðnir í að leggja okkur alla fram og vinnusemin, viljinn, baráttan og fórnfýsin var til fyrirmyndar í dag. �?egar þetta er í lagi þarf ansi mikið til að slá okkur út af laginu svo við héldum áfram og mölluðum í gegnum þetta. Hægt og rólega fór vörnin að virka og markvarslan var flott í seinni hálfleik,�?? sagði Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV í samtali við Mbl.is.
Með sigrinum tókst Eyjamönnum að stökkva upp um tvö sæti, úr fimmta í þriðja, og munu því leika í deildarbikarnum seinna í mánuðinum. �??Við vorum komnir inn í deildarbikarinn eftir að búið var að ákveða með leikina tíu en gulrótin var einfaldlega sú að spila okkur í sæti í þessari deild og vera meðal þeirra bestu en deildin er svo jöfn að það má ekkert misstíga sig.�??
Mörk ÍBV: Magnús Stefánsson 7, Andri Heimir Friðriksson 7, Theodór Sigurbjörnsson 4, Agnar Smári Jónsson 3, Guðni Ingvarsson 3, Grétar Eyþórsson 2, Dagur Arnarsson 1.
Varin skot: Haukur Jónsson 10/1, Kolbeinn A. Ingibjargarson 5.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.