Góður sigur ÍBV gegn Akureyri
Hákon Daði Styrmisson var markahæstur á vellinum í kvöld með 12 mörk.

Akureyri komst loks til Eyja til að leika margfrestaðan leik gegn ÍBV í Olís-deild karla nú í kvöld.

Eyjamenn voru lengi í gang og stóðu leikar 13-14 Akureyri í vil í hálfleik. Í síðari hálfleik fundu strákarnir þó þjölina sína og voru komnir með þriggja marka forskot þegar fimm mínútur voru liðnar af hálfleiknum. Þá forystu náðu Akureyringar aldrei að vinna upp og endaði leikurinn með fjögurra marka sigri ÍBV 31-27.

Með sigrinum styrkja Eyjamenn stöðu sína um miðbik deildarinnar með 17 stig og geta farið að horfa upp fyrir sig. En þar sitja m.a. næstu mótherjar ÍBV, Valur og FH.

Hákon Daði Styrmisson var markahæstur í liði Eyjamanna með 12 mörk. Aðrir markaskorarar voru Kristján Örn Kristjánsson – 5, Kári Kristján Kristjánsson – 4, Magnús Stefánsson – 3, Fannar Þór Friðgeirsson – 3, Gabríel Martinez – 2,
Dagur Arnarsson – 1 og Arnór Viðarsson – 1. Björn Viðar Björnsson varði 13 skot að marki Eyjamanna.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.