Vegna veirufaraldra sem nú geisa í samfélaginu hefur verið ákveðið að takmarka tímabundið heimsóknir til sjúklinga við einn gest á heimsóknartíma.
Heimsóknargestir eiga að vera með grímu meðan þeir dvelja á deildunum og mega ekki vera með einkenni frá öndunarvegi, þar á meðal flensueinkenni eða kvef.
Tilgangurinn með þessum takmörkunum er að draga úr líkum á því að smit berist inn á deildir HSU. Segir í tilkynningu frá stofnuninni.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst