Í dag, fimmtudag, 3. nóvember, ætlar Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra og frambjóðandi til formanns Sjálfstæðisflokksins að sækja Eyjamenn heim en hann stendur fyrir opnum súpufundi í Ásgarði, félagsheimili Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum.
Allir eru hjartanlega velkomnir til þess að ræða mikilvæg málefni er varða stöðu flokksins, framboðið og síðast en ekki síst málefni Eyjamanna og kjördæmisins. Fundurinn hefst á slaginu kl. 12:00 en boðið verður upp á súpu frá Gísla á Næs
Fréttatilkynning.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst