Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna veðurs á eftirtöldum svæðum: Suðurland, Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir, Suðausturland, Miðhálendi og Strandir og norðurland vestra.
Á Suðurlandi tekur viðv-runin gildi í fyrramálið kl. 06:00 og gildir til kl. 12:00. Í viðvörunarorðum segir: Austan 15-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s, hvassast syðst á svæðinu. Varasamt ferðaveður.
Norðaustan 10-18 m/s og þurrt að kalla, en heldur hægari síðdegis. Hiti 3 til 8 stig. Austan 15-25 og rigning á morgun, hvassast syðst, en suðaustan 13-20 og skúrir eftir hádegi.
Spá gerð: 10.12.2025 09:49. Gildir til: 12.12.2025 00:00.
Á föstudag:
Suðaustan og austan 10-18 m/s og rigning eða skúrir, en úrkomulítið norðan- og norðvestantil. Dregur úr vindi vestanlands eftir hádegi. Hiti 2 til 9 stig.
Á laugardag:
Breytileg átt 8-15 og skúrir eða slydduél, en dregur úr vindi og úrkomu með morgninum. Kólnar í veðri. Gengur í norðaustan strekking um kvöldið og fer að rigna suðaustanlands.
Á sunnudag:
Norðlæg eða breytileg átt 8-15 og slydda eða rigning með köflum, en kólnar með snjókomu norðanlands. Hiti um eða rétt yfir frostmarki síðdegis.
Á mánudag og þriðjudag:
Breytileg átt og él á víð og dreif. Svalt í veðri.
Spá gerð: 10.12.2025 08:30. Gildir til: 17.12.2025 12:00.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.