Hækkun skýrist af heilsusamlegra fæði
Rangar forsendur í verðlagseftirliti ASÍ
Í tilefni af fyrirsögn Eyjafrétta í gær um að samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ hefði langmesta hækkunin á gjaldskrá leikskóla verið í Vestmannaeyjum bendi ég á að villa er í útreikningum ASÍ og ekki í fyrsta skipti. �?eir reiknuðu hækkun út frá röngu gjaldi fyrir árið 2013 sem hefur þá þýðingu að hækkunin samkvæmt þeirra forsendum er ekki 14,6% heldur 9,5%. Vestmannaeyjabær hefur þegar komið á framfæri leiðréttingu til ASÍ vegna þessa.
Leikskólagjöld hækka í samræmi við vísitölu
Leikskólagjöld hjá Vestmannaeyjabæ hafa eingöngu hækkað í samræmi við vísitölu síðustu ár, engar hækkanir hafa verið samþykktar á gjöldunum. �?að sem skýrir þessa 9,5% hækkun er hins vegar það að fæðisgjaldið er tekið með í útreikninginn. Upplýst ákvörðun var tekin um að hækka fæðisgjald á leikskólum þar sem ákveðið var að tryggja börnum heilsusamlegra fæði. �?að var ekki síst gert vegna eindreginnar kröfu foreldar bæði leikskóla- og grunnskólabarna og hefur það mælst vel fyrir. Allir vita að matarverð hefur hækkað og þá kannski helst heilsusamlegasta fæðið. Athyglisvert er að á þetta hafði Trausti Hjaltason, formaður fræðsluráðs þegar bent í sama blaði Eyjafrétta, sem sá engu að síður tilefni til að birta forsíðufrétt um málið með umræddri fyrirsögn án þess að gera reka að því að skýra þetta frekar.
Ákvörðun um fæðisgjaldið tekin samhljóma
Oddviti V-listans Jórunn Einarsdóttir fer mikinn í sama blaði og talar um að hækkun á gjaldskrám sé óásættanleg og segist hún verulega ósátt við þessa hækkun. �?g geri nú þær kröfur til fólks sem tekur ákvarðanir fyrir bæjarfélagið að það viti um hvað þær snúast og bendi Jórunni á að á fundi Bæjarráðs nr. 2961 þann 30. júlí 2013 samþykkti hún ásamt meirihluta bæjarráðs að nýr samningur yrði gerður vegna skólamáltíða og breyting yrði gerð á gjaldskrá skólamáltíða leik- og grunnskóla. Á fundinum lagði hún fram bókun um að framlag bæjarins yrði endurskoðað við næstu fjárhagsáætlanagerð, meirihlutinn óskaði eftir tillögum þar að lútandi, sem aldrei bárust. Á fundi bæjarstjórnar nr. 1478 þann 20. september 2013 var gjaldskrárbreyting á skólamáltíðum samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum og þannig samþykkti Jórunn breytinguna þar líka. Einkennilegt er að Jórunn segir ömurlegt að lenda á svörtum lista án þess að vita forsendur þess enda kemur fram í grein hennar að hún hafi óskað eftir gögnum og kveðst vilja vita hvort einhver annar kostnaður sé að valda þessari hækkun. �?að hefði kannski verið ráð að kynna sér málin og rifja upp ákvarðanir áður en hrópað er á torgum.
Vestmannaeyjabær borgar 82% en foreldrar 18%
�?ar sem Jórunn nefnir að röngu upplýsingarnar sem ASÍ birti séu í hrópandi andstöðu við nýsamþykkta lækkun á útsvarinu ætla ég að nota tækifærið og minna á þann mun sem er á þjónustugjöldum og skatttekjum. Skatttekjur eru allra að greiða, lækkun útsvars nær þannig til allra þegna samfélagsins en þjónustugjöld eru greidd af þeim sem nota þjónustuna. �?að er ljóst að ef Vestmannaeyjabær ætlar ekki að innheimta nein þjónustugjöld fyrir veitta þjónustu verður bærinn ekki skuldlaus árið 2017 eins og stefnt er að með núverandi rekstri. Sveitarfélagið borgar nú 82% í kostnaði vegna leikskólabarna en foreldrar 18%. Fyrir ekki svo mörgum árum var 60% greitt af sveitarfélaginu á móti 40% gjaldi foreldra.

Markmiðið að draga úr álögum á íbúa
Við sem nú stjórnum Vestmannaeyjabæ höfum kappkostað að haga rekstri Vestmannaeyjabæjar þannig að hægt sé að létta álögum sem mest af íbúum. �?að hefur að mestu verið gert á þann veg að draga úr rekstrarkostnaði án þess að skerða þjónustu. Til að mynda með fækkun millistjórnenda. Oft hefur það verið gert við hávær mótmæli frá minnihlutanum. Stórt skref var einnig tekið í þá átt með lækkun útsvars. Núverandi meirihluti hefur einnig haft það að leiðarljósi að leita allra leiða til að hækka laun þeirra sem minnst sjá í umslagi sínu um hver mánaðarmót. Skemmst er að minnast þess að fyrir rétt um ári tókum við sem nú myndum meirihlutann ákvörðun um að hækka einhliða laun allra starfsmanna sveitarfélagsins sem störfuðu á lægstu laununum.
Gjaldskrár Vestmannaeyjabæjar eru og eiga ætíð að vera í endurskoðun. �?að gerist hinsvegar ekki með óábyrgum hrópum á torgum. Frá hruni hefur meirihlutinn árlega yfirfarið allar gjaldskrár, sérstaklega á velferðarsviði og stendur slíkt fyrir dyrum á næstu vikum.
Páley Borgþórsdóttir, formaður Bæjarráðs Vestmannaeyjabæjar.

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.