„Fyrsta sem ég hugsa um þegar ég vakna er Brekkusöngurinn og það síðasta sem ég hugsa um áður en ég fer að sofa er Brekkusöngurinn,” segir Ágúst Þór Brynjarsson, brekkusöngvari, um undirbúninginn fyrir Brekkusöng Þjóðhátíðar, sem hann stýrir í fyrsta sinn um verslunarmannahelgina.
Í hlaðvarpinu Popparasögur segir hann að hann hafi tekið meðvitaða ákvörðun um að hafna nær öllum tónleikaverkefnum í júlímánuði til að geta einbeitt sér alfarið að stærsta verkefni ferils síns. „Það hefði verið mjög auðvelt að segja já við öllum giggunum. En ég ákvað bara mjög snemma að ég ætlaði að vera heima, undirbúa mig, fara yfir prógrammið og gera þetta eins vel og ég mögulega get.“
Ágúst segir Þjóðhátíð hafa haft sérstakan sess hjá sér löngu áður en hann steig sjálfur á sviðið. Hann fór fyrst sem gestur árið 2018 og segir upplifunina af brekkunni og blysunum hafa verið ógleymanlega. Ári síðar stóð hann aftur í brekkunni og tók ákvörðun sem hefur fylgt honum síðan.
„Ég man hvar ég stóð þegar ég sagði við sjálfan mig: Næst þegar ég kem á Þjóðhátíð ætla ég að spila á henni,” segir hann. Sá draumur rættist þegar hann fékk síðar tækifæri með Stuðlabandinu og nú leiðir hann sjálfan Brekkusönginn.
Í viðtalinu segir hann að reynslan úr Söngvakeppni sjónvarpsins hafi nýst sér vel í undirbúningnum. Hann rifjar meðal annars upp að eftir úrslitakvöldið hafi hann grátið í nokkrar klukkustundir þegar spennan sem hafði byggst upp í marga mánuði losnaði loks. „Ég var búinn að vera í algjörum fókus í hálft ár og svo bara slökktu þeir á myndavélunum og þá bara kom allt út.“
Brekkusöngurinn er ekki aðeins stærsta verkefnið um verslunarmannahelgina heldur verður það jafnframt eina verkefni Ágústs þá helgina. „Ég ákvað bara að þetta væri alveg nógu stórt verkefni. Ég ætla ekki að vera á flakki heldur vera í Eyjum og einbeita mér að þessu.“
Í þættinum segir Ágúst einnig frá leið sinni inn í tónlistina, samstarfinu við Stuðlabandið, fyrstu plötunni sinni og þeirri ákvörðun að skapa sér sjálfur tækifæri í stað þess að bíða eftir þeim.