Hafnarstarfsmenn og starfsfólk leikskóla í verkfall?
Ísleifur við löndunarkantinn og Kap bíður átekta fjær

Á hádegi í dag, 28. apríl, hófst atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir BSRB félaga í Hafnafirði, Reykjanesbæ, Ölfus, Árborg, Hveragerði og Vestmannaeyjum, vegna kjaradeilu aðildarfélaga BSRB við Samband íslenskra sveitarfélaga. Kosningu lýkur á hádegi á fimmtudag 4. maí og verða niðurstöður kynntar í kjölfarið.

Þetta kemur fram á heimasíðu BSRB

Verði verkfallsboðun samþykkt mun starfsfólk leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila, mötuneyta og hafna leggja niður störf í 10 sveitarfélögum, en misjafnt er eftir sveitarfélögum hvaða stofnanir eru undir.

Um hvað snýst málið?
Kjaradeilan snýr að sameiginlegri kröfu BSRB félaga um að starfsfólk sveitarfélaga, sem vinna m.a. á leikskólum, grunnskólum, sundlaugum, íþróttamiðstöðvum og þjónustu við fatlað fólk fái sömu laun fyrir sömu eða sambærileg störf innan sömu stofnunar eða sveitarfélags og aðrir hafa þegar fengið frá 1. janúar. Þar sem Samband íslenskra sveitarfélaga neitar að leiðrétta augljósa mismunun á launum starfsfólks, og fundir með ríkissáttasemjara hafa engu skilað, greiðir félagsfólk um þessar mundir atkvæði um verkfallsaðgerðir svo knýja megi viðsemjendur okkar til samninga.

Hvaða starfsfólk kemur til með að leggja niður störf?
Um 1500 félagsmenn 10 aðildarfélaga BSRB í leik- og grunnskólum, frístundarmiðstöðvum, skólaeldhúsum og höfnum koma til með að leggja niður störf:

Vestmannaeyjar: Leikskólar og Vestmannaeyjarhöfn og eru verkföll fyrirhuguð 22., 23., 24. 25. og 26. maí, 5,. 6., 7., 8., og 9. júní. Náist ekki að semja fyrir þann tíma er gert ráð fyrir stigmagnandi aðgerðum.

 

Nýjustu fréttir

Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar
Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár
Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.