Heill sé höfðingjanum Halla Gísla

Haraldur Gíslason er orðinn áttræður og trúi því hver sem vill. Áfanganum náði hann föstudaginn 25. febrúar.

Samstarfsfólk á skrifstofu Vinnslustöðvarinnar taldi mun líklegra en hitt að hann tæki sér frí í vinnu í tilefni stórafmælis. Nei, aldeilis ekki. Halli Gísla mætti sem endranær til að selja mjöl og lýsi um allar jarðir. Það þarf greinilega talsvert meira en áfanga upp á átta áratugi til að höfðinginn láti sig vanta á vinnustaðnum.

Skiptiborð VSV var óvenju rauðglóandi þennan tiltekna föstudag. Ótal samskipta- og viðskiptavinir hringdu stöðugt til að heyra í afmælisbarninu og koma á framfæri hamingjuóskum. Halli tók við góðum kveðjum í borðsímanum sínum því hann á ekki farsíma, hefur aldrei átt og mun tæplega eignast úr því sem komið er.

Vinahjörðin veit að hún hyllir Halla Gísla líka í fastlínukerfinu á næsta stórafmæli.

Í tilefni tímamótanna bar starfsfólk á skrifstofu Vinnslustöðvarinnar á borð sérmerkta rjómatertu og fleira sætt og gott í fundarsalnum. Binni tók að sér tertuskurð og leysti afmælisbarnið út með blómum (Lilja B. Arngrímsdóttir tók myndirnar í afmælisteitinu).
Hjartanlega til hamingju, Haraldur Gíslason!

PS.

Það kemur afmæli Halla Gísla nákvæmlega ekkert við en þegar borgarfulltrúinn Vigdís Hauksdóttir tilkynnti í gær að hún gæfi ekki kost á sér til endurkjörs rifjaðist upp heimsókn hennar til Vestmannaeyja fyrir nokkrum árum. Hún lagði leið sína í fiskimjölsverksmiðju VSV til að líta á nöfnu sína, nýja skilvindu sem starfsmenn þar á bæ nefndu eftir þessum þáverandi alþingismanni Framsóknarflokksins.

Vel fór með þeim nöfnum. Að heimsókn lokinni skrifaði Vigdís á Fésbókarsíðuna sína að ónafngreindur starfsmaður í verksmiðjunni hefði tjáð sér að helsti kostur Vigdísar skilvindu væri sá að auðvelt væri að slökkva á henni en alls ekki á Vigdísi stjórnmálamanni.

Á myndinni eru Halli Gísla, Vigdís skilvinda og Siggi Friðbjörns.

Vigdís Hauksdóttir er sem sagt á leið úr pólitík, Vigdís skilvinda malar áfram og Halli Gísla selur áfram mjöl.

 

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.