Öll viljum við og þurfum að eiga húsaskjól, öruggt heimili. Athvarf þar sem okkur líður vel og við getum rekið án þess að þurfa neita okkur um aðrar grunnþarfir. Til að byggja upp öflugt almennt húsnæðiskerfi fyrir almenning á Íslandi er mikilvægt að taka tillit til ýmissa þátta sem stuðla að langtímalausnum og réttlæti á húsnæðismarkaði. Ríkið þarf að stórauka stuðning við framboð á húsnæði með stofnframlögum og uppbyggingu félagslegs leiguhúsnæðis og það sem fyrst. Þar þarf að byggja hagkvæmt húsnæði án þess að fórna gæðum eða umhverfismarkmiðum. Þannig væri stuðningur aukinn við byggingu leigu- og búseturéttaríbúða sem eru á viðráðanlegu verði fyrir lág- og millitekjuhópa. Öruggt húsnæði eru nefnilega mannréttindi.
Þá er mikilvægt að setja takmörk á íbúðakaup til fjárfestinga með aukinni skattlagningu á annarri, þriðju o.s.frv. eign sem gjarnan eru keyptar af fjárfestum í gróðaskyni og koma böndum á Airbnb. Þá er ein leið að stuðla að nýsköpun í húsnæðisformum líkt og sameignar- eða búsetufélögum, sem leið til að draga úr byggingarkostnaði og stuðla að sjálfbærni. Tryggja þarf að húsnæðislausnir henti öllum hópum samfélagsins, þar á meðal eldri borgurum, fólki með fötlun og ungu fólki.
Fjárhagslegt öryggi kaupenda og leigenda er mikilvægt. Þess vegna þurfa lánaskilmálar á almennu húsnæði að vera sanngjarnir og endurskoða þarf og bæta vaxtakjör á húsnæðislánum. Það þarf að auka opinberan stuðning með auknu fjármagni til verkefna sem miða að því að tryggja húsnæðisöryggi, eins og fjölgun hlutdeildarlána til að auðvelda fyrstu kaupendum að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Um leið þarf að styrkja leigumarkaðinn og setja reglur sem vernda leigjendur og leigusala, og stuðla að langtímaleigusamningum sem tryggja stöðugleika, auka stuðning við leigendur um leið og koma þarf á leigubremsu. Einnig þarf að huga að endurnýjum eldri bygginga og styðja við endurbætur á eldra húsnæði til að bæta orkunýtingu og stuðla að minni sóun og um leið umhverfisvernd. Nota vistvæn byggingarefni og tækni til að draga úr kolefnisspori í byggingariðnaði.
Um leið þarf að fara í skýra og stöðuga stefnumótun þar sem ríki og sveitarfélög móta langtímaáætlanir sem tryggja stöðugleika á húsnæðismarkaði og taka mið af fólksfjölgun og þörfum samfélagsins. Með þessu stöndum við í VG og munum leggja okkur öll fram um að byggt verði húsnæði fyrir venjulegt fólk á sanngjörnu verði.
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, kennari og oddviti Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Suðurkjördæmi.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.