Heimsending – samstarf hjá Kránni og Handknattleiksdeild ÍBV
Sunna og Fannar, mynd: ÍBV

Í dag, 31.október, hefjum við í handknattleiksdeildinni samstarf með Kránni sem snýr að heimsendingu á mat. Þetta verður í boði á milli klukkan 18 og 20 alla daga.

Ef þú pantar fyrir 4.000 kr.- eða meira hjá Kránni getur þú fengið heimsendingu á matnum fyrir aðeins 500 kr.- sem renna beint til ÍBV og svo leggur Kráin sömu upphæð á móti í styrkt til deildarinnar.

Leikmenn meistaraflokka handboltans munu sjá um að keyra matnum heim að dyrum til þín!

Eins og áður sagði hefst verkefnið í kvöld og verða hjónin Sunna Jóns og Björn Viðar á fyrstu vaktinni.

Taktu því rólega heima, fáðu dýrindis kræsingar frá Kránni heim að dyrum og styrktu handknattleiksdeildina í leiðinni.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.