Helstu verkefni lögreglunnar vikuna 24. til 31. október
Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin teljandi mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar gekk þokklega fyrir sig, fyrir utan eina líkamsárás sem átti sér stað um helgina. Eitthvað var þó um ölvun um helgina eins og fylgir skemmtunum.
Ein líkamsárás var kærð eftir skemmtanahald helgarinnar en þarna var um að ræða, að því er virðist, hópslagsmál sem enduðu með því að tveir þurftu að leita sér lækninga. �?ljóst er um atvik en málið er í rannsókn.
Að kvöldi 28. október sl. var lögreglu tilkynnt um eld um borð í Sighvati Bjarnasyni VE og var slökkvilið Vestmannaeyja kallað út vegna atviksins. Í ljós kom að múffa, sem er utan um olíufýr, ofhitnaði þannig að rjúka fór úr henni. Litlar sem engar skemmdir urðu á skipinu.
Tvær kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum en um var að ræða vanrækslu á notkun öryggisbelta við akstur.

Nýjustu fréttir

Íslandsbanki varar við svikasímtölum
Tölum saman í FÍV á morgun
Útflutningur eldisafurða kominn í tæpan 51 milljarð
Sigurbergur ráðinn tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi
Í höfn og á hafi – myndasyrpa
Málþing, súpa og spjall
Eyjamenn sækja ÍR heim í bikarnum í kvöld
Hátt í 50 manns við síldarvinnslu hjá VSV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.