Helstu verkefni lögreglunnar vikuna 31. október til 7. nóvember 2016.
Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í liðinni viku vegna hinna ýmsu mála sem upp komu. Helgin gekk ágætlega fyrir sig en eitthvað var þó um pústra án þess að kærur liggi fyrir. �?á var eitthvað um það að lögreglan hjálpaði fólki til síns heima sem sökum ölvunarástands gat ekki bjargað sér sjálft.
Að kvöldi 3. nóvember sl. var lögreglu tilkynnt um að brotist hafi verið inn á lager verslunarinnar Vöruvals og að tveir menn væru þar fyrir utan. Er lögreglan kom á staðinn hljóp annar mannanna í burtu en hinn var handtekinn á staðnum og var í framhaldi af því vistaður í fangageymslu. Hinn maðurinn var handtekinn daginn eftir og við yfirheyrslu hjá lögreglu viðurkenndu þeir innbrotið og báru fyrir sig dómgreindarleysi sökum áfengisneyslu. Hurð sem var fyrir lagernum skemmdist í innbrotinu ásamt hluta af vörum sem mennirnir voru búnir að tína til. Málið telst að mestu upplýst.
Að morgni 3. nóvember sl. var lögreglu tilkynnt um vinnuslys á athafnarsvæði Eimskips en þarna hafði maður sem var að vinna á lyftara slasast á hendi. �?arna var verið að vinna við að setja fiskikör í gámavagn og var lyftaranum ekið inn í vagnin til að koma körunum fyrir. Er lyftarinn var inni í gámnum gaf annar fótur gámavagnsins sig þannig að vagninn skall niður og rann lyftarinn þá út um aðra hlið vagnsins og lenti á hliðinni.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í vikunni en þarna var um minniháttar óhapp að ræða og engin slys á fólki.
�?rjár kærur vegna brota á umferðarlögum liggja eftir liðna viku en um er að ræða kærur vegna vanrækslu á að nota öryggisbelti í akstri, notkun farsíma í akstri án handfrjáls búnaðar og ólöglega lagningu ökutækis.

Nýjustu fréttir

Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.