„Hentar örugglega vel til vinnslu”
Landad Ur Vestmannaey Ve 22 Jul
Landað úr Vestmannaey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu í Neskaupstað í gær. Afli beggja skipa var á milli 50 og 60 tonn, mest þorskur.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að einungis hafi verið stoppað í rúmlega 50 tíma á miðunum. „Við héldum beint á Glettinganesflak frá Eyjum og vorum þar. Veður var þokkalegt í upphafi en síðan var það hundleiðinlegt. Við munum halda til veiða strax að löndun lokinni,” sagði Egill Guðni í samtali við vefsíðu Síldarvinnslunnar.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, sagði að túrinn hafi byrjað í ufsaleit. „Við könnuðum hvort væri ufsi í Reynisdýpi og á Mýragrunni en það skilaði hverfandi árangri. Þá var haldið á Glettinganesflak en frést hafði af góðum afla þar. Þegar við komum þangað hafði veiðin minnkað og var í rólegri kantinum. Fiskurinn sem þarna fékkst var hins vegar fínn og hentar örugglega vel til vinnslu. Við munum halda til veiða þegar lokið verður við að landa og við sjáum til hvert verður farið,” sagði Jón.

Nýjustu fréttir

Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.