Herjólfur til Þorlákshafnar
Herjólfur á siglingu frá Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Herjólfur ohf. hefur gefið út nýja tilkynningu um siglingar dagsins þar sem fram kemur að aðeins verði farin ein ferð til Þorlákshafnar fyrri hluta dags. Aðstæður í og við Landeyjahöfn hafa farið versnandi og hefur það áhrif á siglingaráætlun Herjólfs.

Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 07:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 11:00.

Í tilkynningunni eru farþegar sem hyggjast nýta gistirými um borð minntir á að koma með eigin búnað. Þá kemur fram að tilkynning um siglingar seinnipart dags verði gefin út fyrir klukkan 15:00.

Að lokum eru þeir farþegar sem eiga farartæki í Landeyjahöfn beðnir um að gefa sig fram við afgreiðslu Herjólfs.

Nýjustu fréttir

Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Þorskurinn eltir síldina fyrir austan
Bókasafnið – liðsfélagi í Kveikjum neistann
Óvenjulegir tónleikar í sundlauginni – myndir
Stjórnendur Herjólfs gestir á laugardagsfundi í Ásgarði
Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.