Í dag klukkan 16:00 mun ÍBV taka á móti Víkingi í 6. umferð Pepsídeildar karla. Eyjamenn eru sem stendur í öðru sæti deildarinnar, aðeins stigi á eftir KR sem er efst en Víkingar eru í 8. sæti með 6 stig. Eyjamenn hafa unnið þrjá leiki, gert eitt jafntefli og tapað einum á meðan Víkingar hafa unnið einn leik, gert þrjú jafntefli og tapað einum. Stuðningsmenn ÍBV ætla að taka daginn snemma því þeir ætla að hita upp fyrir leikinn klukkan 14:00 í Týsheimilinu.