Hlutu verðlaun í myndasamkeppni um Vilborgu og hrafninn
Georg víkingur kom í Sagnheima 10. janúar og upplýsti gesti hvernig það hefði verið að vera víkingur – fyrr og nú. Að lokum veitti hann verðlaun í myndasamkeppninni um Vilborgu og hrafninn í Herjólfsdal.Tæplega sextíu myndir bárust og var dómnefndinni, Steinunni Einarsdóttur og Kristínu Garðarsdóttur mikill vandi á höndum. Komust þær að þeirri niðurstöðu að myndirnar væru allar svo flottar að í raun væru allir krakkarnir sigurvegarar. Eftir að safnstjóri var búinn að pína þær aðeins meira, völdu þær úr þrjár myndir sem voru verðlaunaðar sérstaklega. Hér má sjá vinningshafana með Helgu safnstjóra og Georg víkingi.
Á myndinni frá vinstri: Arnar Berg Arnarson, Bertha �?orsteinsdóttir og Aron Máni Magnússon. Verðlaunin voru bókin Víkingarnir, norrænir sæfarar og vígamenn.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.