Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Hraunbúðir.

Sjúkraliðafélag Íslands stendur þétt við bakið á félagsmanni sínum sem var handtekinn og fékk réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Hraunbúðum. Félagið segir reynsluna geta haft djúpstæð áhrif á heilsu, fjölskyldulíf, starfsferil og mannorð viðkomandi.

Sjúkraliðafélag Íslands krefst þess að réttaröryggi heilbrigðisstarfsfólks verði betur tryggt þegar alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu eru rannsökuð. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem félagið birti í dag vegna rannsóknar lögreglu á andláti á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum.

Lögreglan á Suðurlandi hætti nýverið rannsókn málsins eftir að endanleg krufningsskýrsla hafði borist. Niðurstaðan var sú að ekki væri grundvöllur til að halda rannsókninni áfram.

Félagsmaður Sjúkraliðafélagsins hafði verið handtekinn, sviptur frelsi og fengið réttarstöðu sakbornings vegna málsins. Félagið segir málið afar alvarlegt og bendir á að slík reynsla geti haft djúpstæð áhrif á heilsu, fjölskyldulíf, starfsferil og mannorð, þótt rannsókn sé síðar hætt.

Sjá einnig: Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum

Kalla eftir öruggri endurkomu til starfa

Félagið segist áfram munu standa með félagsmanni sínum og leggja áherslu á að viðkomandi fái viðeigandi stuðning.

Jafnframt sé það á ábyrgð vinnuveitanda að tryggja vandaða og örugga endurkomu til starfa, eftir því sem aðstæður og óskir félagsmannsins leyfi.

Horfa verði til kerfislægra þátta

Í yfirlýsingunni er lögð áhersla á að alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu verði rannsökuð af festu, fagmennsku, nærgætni og óhlutdrægni og að öryggi sjúklinga sé ávallt haft í fyrirrúmi.

Rannsóknir þurfi þó jafnframt að byggjast á meðalhófi, viðeigandi sérþekkingu og heildstæðu mati á öllum aðstæðum. Þar þurfi meðal annars að líta til mönnunar, vinnuálags, verkferla, stjórnunar og annarra kerfislægra þátta.

Félagið telur að áður en gripið sé til íþyngjandi rannsóknarúrræða þurfi, eftir því sem lög og aðstæður leyfa, að liggja fyrir faglegt frummat á því sem gerðist og hvort eðlilegar skýringar geti verið á atvikinu.

„Sjúkraliðar verða að geta gengið til ábyrgðarmikilla starfa án þess að óttast að verða persónulega gerðir ábyrgir fyrir alvarlegu atviki áður en faglegt og heildstætt mat hefur farið fram,“ segir í yfirlýsingunni.

Krefjast skýrra og samræmdra verkferla

Sjúkraliðafélagið hyggst fylgja því eftir að stjórnvöld ljúki þeirri vinnu sem lög nr. 103/2023 kveða á um.

Félagið krefst þess að niðurstöður starfshóps um óháða málsmeðferð verði birtar og þeim fylgt eftir. Þá verði sett og birt sérstök fyrirmæli um rannsókn alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu og komið á skýru, samræmdu og opinberu verklagi sem tryggi réttindi sjúklinga, aðstandenda og heilbrigðisstarfsmanna.

„Ekki verður sætt við áframhaldandi óvissu um réttarstöðu heilbrigðisstarfsmanna,“ segir í yfirlýsingunni.

Í lok yfirlýsingarinnar segir Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, að hugur félagsins sé hjá aðstandendum hinnar látnu. Virðing fyrir sorg þeirra og stuðningur við heilbrigðisstarfsmanninn sem sætti rannsókninni geti farið saman.

„Enginn sjúkraliði á að standa einn þegar frelsi hans, starfsheiður og framtíð eru undir.“

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Háski og félagar senda frá sér þjóðhátíðarlagið „Væntanlega“
Hópferð á undanúrslitaleikinn hjá stelpunum á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.