Hreinsunardagur og einn poki af rusli

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni var farið yfir svæði, lóðir og fasteignir þar sem úrbóta er talin þörf. Einnig liggur fyrir tillaga af bréfi til ábyrgðaraðila og almennt tilmælabréf til aðila í atvinnurekstri. Þá voru lagðar fram dagsetningar og verklag í komandi vorhreinsunarátaki.

Í fundargerð kemur fram að ráðið feli starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasvið í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands að senda áskorun um úrbætur á eigendur þeirra fasteigna og lóða sem úrbóta er þörf. Þá skal senda almennt dreifibréf með tilmælum um snyrtilega umgengni sent til lóðarhafa í atvinnurekstri á hafnarsvæði, iðnaðarsvæði og miðbæjarsvæði.

Þann 23. maí n.k. verður almennur hreinsunardagur á Heimaey. Félagasamtök og annarra hópa hafa verið afar duglegir til þess að taka þátt í deginum. Dagskrá hreinsunardagsins verður auglýst síðar.

Á fundinum kom tillaga frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins þar sem lagt var til að áfram verði haldið með átakið “einn poki af rusli” sem verið hefur í gangi sl. tvö ár. Ráðið samþykkti tillöguna

Nýjustu fréttir

Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.