HSU �?? Blóðprufur í eðlilegt horf á næstu einni til tveimur vikum
�??Við höfum þurft að takmarka blóðprufufjölda tímabundið vegna mannabreytinga á rannsókn. �?að hefur tekið lengri tíma að þjálfa starfskrafta en til stóð og því gengur �??færibandið�?? hægar en vanalega,�?? segir Hjörtur Kristjánsson, Hjörtur Kristjánsson, framkvæmdastjóri lækninga á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands um stöðu sem komin er upp í Vestmannaeyjum þar sem takmarka þarf þann fjölda sem tekinn er í blóðprufu á degi hverjum.
�??Bráðarannsóknir og rannsóknir á inniliggjandi sjúklingum eiga ekki að hafa orðið fyrir barðinu á þessu en takmarka hefur þurft fjölda þeirra sem við getum kallað, ekki-bráðra rannsókna og hafa þær því verið háðar tímabókanaferli.
Venjulega hefur fólk getað komið inn af götunni í blóðprufu án þess að panta tíma í rannsókn. �?egar það á við er það læknis að meta hvort rannsókn er bráð eða getur beðið í fáeina daga. Hægt er að hafa samband við hjúkrunarfræðing á flýti- og samdægursmóttöku á heilsugæslu ef fólk hefur ekki komist að og telur að rannsókn hjá sér sé brýn.�??
Hjörtur segir að fjöldi þeirra rannsókna sem hægt hefur verið að sinna fari vaxandi. �??�?g held að núna sé hægt að taka um 10 einstaklinga, með ekki-bráðar rannsóknir að öllu jöfnu til viðbótar bráðum rannsóknum og rannsóknum á inniliggjandi.
Við erum komin í um þrjá fjórðu af meðalfjölda rannsókna á dag og vonandi verður þetta komið í eðlilegt horf eftir 1 til 2 vikur. Til að flækja málin þá hafa komið upp endurteknar bilanir í nýju rannsóknatæki sem við fengum í sumar og það hefur ekki bætt úr skák.
�?etta hefur óhjákvæmilega haft óþægindi í för með sér fyrir suma einstaklinga og það ber að harma. Vonandi kemst �??færibandið�?? á eðlilegan snúning á næstu 1 til 2 vikum,�?? sagði Hjörtur að endingu.

Nýjustu fréttir

Ágæt veiði hjá Eyjunum
Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“
Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu
Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld
Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð
Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.