Forvarnahópur ÍBV-íþróttafélags var stofnaður í júní á síðasta ári en eins og nafnið gefur til kynna, hefur hópurinn það að markmiði að starfa að ýmsum forvörnum. Fyrsta verkefni hópsins var að standa fyrir átakinu „Bleiki fíllinn“ fyrir síðustu þjóðhátíð en verkefnið tókst afar vel, vakti athygli á landsvísu og bæjarbúar tóku því fagnandi. Nú ætlar Forvarnahópurinn, í samvinnu við Íslandsbanka og Íþróttaakademíu ÍBV-íþróttafélags, að fara af stað með aðra herferð sem beinir sjónum sínum að vímuefnaneyslu unglinga.