Humarafli sunnudagsins á Breiðafirði framar vonum
Klemens Sigurðsson skipstjóri með gildru og humar

„Við fengum humar í flestar gildrur, í nokkrum var ekkert en afli dagsins var í heildina langt framar vonum. Við fengum alla vega staðfest að það er talsvert af humri á þessum slóðum en auðvitað er óvarlegt að draga víðtækar ályktanir af því sem kom upp í dag. Við freistum gæfunnar víðar á næstu vikum til að átta okkur á því hvar humar er að finna og í miklum mæli,“ segir Klemens Sigurðsson, skipstjóri á Ingu P SH-423, sem stundar í tilraunaskyni gildruveiðar á humri á Breiðafirði á vegum Vinnslustöðvarinnar.

Í fyrri viku voru um 70 gildrur lagðar lagðar norður af Bárðargrunni með 15 faðma millibili og beitt var með síld af Færeyjamiðum. Þegar gildranna var vitjað var þar ekkert að finna nema slatta af beitukóngum og nokkrar rækjur.

Næst var gildrunum sökkt í sjó vestur af Öndverðarnesi, vestasta tanga Snæfellsness. Þar fékkst afli dagsins á um hundrað faðma dýpi eftir að gildrurnar höfðu legið á botninum í tvær nætur. Góður millihumar og upp úr en nær ekkert af smáum humri.

„Við þreifum okkur áfram og lærum smám saman. Það er gaman að taka þátt í svona tilraunastarfsemi og æfingar við að leggja gildrur og draga þær. Eftir einn mánuð eða svo höfum við náð betri tökum á hlutunum og græjað aðstöðuna um borð.

Við höfum orðið varir við humar á Breiðafirði síðustu tíu til tólf árin og í frekar í vaxandi mæli en hitt, finnst mér. Á áratugum áður veit ég ekki til þess að humars hafi orðið vart þarna. Skýringin á breytingunni getur verið hlýsjávarskeið undanfarin áratug eða svo. Nú virðist sjórinn vera að kólna á ný, hvaða áhrif sem það sem kann að hafa.“

Hjörtur Sigurðsson útgerðarmaður að leggja humargildrur
Menn á Ingu P að athafna sig með gildrur í fyrri viku

Nýjustu fréttir

Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í febrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.