Í aðdraganda jóla - Auðbjörg Halla

Fjölskylda?  

Gift Hallgrími Steinssyni, eigum þrjár dætur: Unni Birnu, Hrafnhildi og Önnu Steinunni, tvo tengdasyni: Guðmund og Egil, og eitt barnabarn, hana Aþenu Mey. 

Hvernig leggjast jólin í þig?   

Rosalega vel, við verðum öll í Eyjum um jólin en vanalega höfum við verið í Reykjavík á jólunum.  

Fer mikill undirbúningur í jólin hjá þér? 

Hingað til hefur undirbúningur ekki verið mikill fyrir jól því við höfum alltaf fjölskyldan, nema einu sinni, verið í Reykjavík hjá tengdaforeldrunum. Auðvitað þetta hefðbundna eins og jólaskreyta og baka jólasmákökur og kaupa pakka en við höfum alveg sloppið við eldamennskuna sem mun koma sterk inn þetta árið.  

Ertu með einhverja sérstaka hefð á jólunum?  

Það er möndlugrautur hjá mömmu á aðfangadag en hún hefur oft fært hann til því við höfum ekki verið. Núna verður þetta hefðbundið, möndlugrautur í hádeginu hjá mömmu og pabba og síðan hittumst við aftur um kvöldið, borðum saman og opnum pakka. Við hittumst síðan aftur á jóladag og borðum hangikjöt og síðan er púkkið á sínum stað um jólin. Gamlárskvöld er síðan heima hjá okkur eins og alltaf, þá hittumst við stórfjölskyldan eftir mat og horfum á skaupið og skjótum upp flugeldum. Síðan kíkja oft vinir til okkar eftir miðnætti. 

Hvert er þitt uppáhalds jólalag?  

Er nú ekki mikil jólalagakona, ætli það sé ekki Ó helga nótt. 

Hvað er í matinn hjá þér/ykkur á aðfangadag? 

Það verður tvírétta hjá mömmu og pabba: hamborgarhryggur og síðan fyrir þá sem ekki þola vel reyktan mat hefðbundinn hryggur. 

Hvað stendur upp úr á jólunum?  

Samvera með fjölskyldunni, ég hlakka mikið til þessara jóla þar sem öll fjölskyldan verður á Eyjunni og það verður sérstaklega gaman að upplifa jólin með barnabarninu sem er 17 mánaða og allt svo spennandi og skemmtilegt. Ég óska ykkar allra gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.  

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.