Í aðdraganda jóla - Haraldur Pálsson
Haraldur ásamt fjölskyldu sinni.

Fjölskylda?  

Íris og ég ásamt Þórarni og Gísla sem eru 11 ára tvíburar og Rut sem er 3 ára.  

Hvernig leggjast jólin í þig? 

Jólin leggjast vel í mig, þau eru tími kærleika og friðar. Jólin minna mig á að kærleikurinn er stærri en allt annað. Hann er þolinmóður, hlýr og gleður hjarta manns. Á þessum tíma tel ég mikilvægt að gefa af sér, fyrirgefa og mæta fólki. 

Fer mikill undirbúningur í jólin hjá þér?  

Það byrjar yfirleitt á því að huga að árlegu jólagjöfinni fyrir ömmurnar og afana sem er dagatal þar sem við söfnum saman myndum frá árinu. Síðan gef ég mér alltaf tíma í að baka piparkökur sem innihalda Jamaican Pepper með krökkunum, það eru bestu kökurnar. Við reynum að jólaskreyta eins og tíminn leyfir og síðan tek ég oftast þátt í innpökkun á gjöfunum. Það er ýmislegt fleira sem týnist til. 

Ertu með einhverja sérstaka hefð á jólunum?  

Hefðin er að borða jólaönd á aðfangadag og heitt hangikjöt á jóladag og gott spilakvöld. Góður göngutúr á nýársdag og nýárspartý með vinahópnum. Það hafa svo að auki ýmsar hefðir verið í nokkur ár í senn, komið og farið. 

Hvert er þitt uppáhalds jólalag?  

Do they know it’s Christmas? með Band Aid. 

Hvað stendur upp úr á jólunum?  

Það sem stendur upp úr fyrir mér er samvera með börnunum. Að upplifa jólin í gegnum börnin er það sem gerir þessa hátíð skemmtilega.  

Nýjustu fréttir

Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör með þjóðhátíðarlagið
Spurt og svarað: Hildur Rún frá Eyjalistanum
ÍBV á útivelli gegn Val
Aldan enn of há fyrir Álfsnes
Kjarnaboranir hefjast í Eyjum: „Stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa“
Vel heppnaður fundur
Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.