Ian Jeffs tekur ekki við karlaliði ÍBV
Knattspyrnuráð karla ÍBV hefur átt í viðræðum við Ian David Jeffs að taka að sér þjálfun mfl. karla ÍBV í knattspyrnu. Niðurstaðan er sú að Ian David Jeffs hefur ákveðið að taka ekki tilboði ráðsins um þjálfun liðsins. �?ess í stað hefur hann ákveðið að halda áfram þjálfun kvennaliðs ÍBV.
Knattspyrnuráð karla þakkar Ian David Jeffs fyrir hans góða framlag við að tryggja veru karlaliðs ÍBV í deild þeirra bestu, og óskar honum áframhaldandi velgengni í sínum störfum fyrir kvennalið ÍBV.
Knattspyrnuráð karla þakkar einnig Alfreð Elíasi Jóhannssyni fyrir samstarfið á sl. keppnistímabili. Alfreð náði góðum árangri með 2.flokk karla og starfaði einnig sem aðstoðarþjálfari mfl. karla þar til hann og Ian David Jeffs tóku að sér mfl. karla við brotthvarf fyrri þjálfara. Knattspyrnuráð karla óskar Alfreð velfarnaðar í nýju starfi.
Knattspyrnuráð karla mun halda áfram að vinna í ráðningu þjálfara fyrir komandi keppnistímabil og tilkynna frekar um þann framgang eftir því sem aðstæður gefa efni til.

Nýjustu fréttir

KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.