ÍBV getur tryggt sæti í úrslitum með sigri í dag
Sótt að marki Hauka. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

Kvennalið ÍBV í handbolta mætir Haukum í dag í fjórða leik liðanna í úrslitakeppninni. Leikið verður í Kuehne+Nagel höllinni og hefst leikurinn klukkan 15:00.

ÍBV er í lykilstöðu í einvíginu eftir dramatískan sigur í síðasta leik, þar sem Eyjakonur höfðu betur 38–37 eftir tvíframlengdan leik. Með sigrinum náði liðið 2–1 forystu í einvíginu og getur með sigri í dag tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu.

Leikurinn í Eyjum var æsispennandi frá upphafi til enda. ÍBV var yfir stærstan hluta leiksins en Haukar jöfnuðu og komust yfir á lokasekúndum venjulegs leiktíma. Kristrún Ósk Hlynsdóttir jafnaði hins vegar á síðustu sekúndum og tryggði framlengingu þar sem Eyjakonur reyndust sterkari í lokin.

Sandra Erlingsdóttir fór á kostum í síðasta leik með 14 mörk og Birna Berg Haraldsdóttir bætti við níu mörkum í mikilvægum sigri ÍBV. Nú er ljóst að mikið er undir í dag – annað hvort tryggir ÍBV sér sæti í úrslitum eða Haukar jafna einvígið og knýja fram oddaleik.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.