Kvennalið ÍBV í handbolta er komið yfir í 8-liða úrslita einvíginu gegn Haukum, í úrslitakeppni Olís deildar kvenna, eftir eins marks sigur í tvíframlengdum leik í Eyjum í kvöld. Lokatölur leiksins 38-37 ÍBV í vil. Eyjakonur eru nú komnar í lykilstöðu og leiða 2-1 einvíginu.
ÍBV byrjaði leikinn af krafti og voru með fjögurra marka forystu, 8-4, eftir tíu mínútna leik. Eyjakonur voru með forystuna allan fyrri hálfleikinn og voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 18-16.
Eyjakonur byrjuðu síðari hálfleikinn betur og komust fjórum mörkum yfir, 20-16, á upphafs mínútunum. Haukar komu sér betur inn í leikinn þegar líða tók á og var staðan jöfn, 24-24 þegar stundarfjórðungur var eftir. Lokamínútur venjulegs leiktíma voru spennuþrungnar og var allt í járnum. Haukar komust yfir á loka sekúndum leiksins og var staðan 28-29 þegar átta sekúndur voru til leiksloka. Eyjakonur brunuðu í sókn og Kristrún Ósk Hlynsdóttir skoraði jöfnunarmark á ögurstundu og tryggði ÍBV framlengingu. Staðan eftir venjulegan leiktíma 29-29.
Haukar voru sterkari í fyrri framlengunni og náðu tveggja marka forystu, 33-31. Eyjakonur neituðu að leggja árar í bát og jöfnuðu leikinn í 34-34 og því þurfti að framlengja aftur.
Mikil spenna var í síðari framlengunni en að lokum var það Ásdís Halla Hjarðar sem tryggði ÍBV sigurinn með marki af línunni. Lokatölur leiksins 38-37.
Sandra Erlingsdóttir var frábær í liði ÍBV en hún skoraði 14 mörk. Birna Berg Haraldsdóttir reyndist Eyjakonum einnig gríðarlega mikilvæg í kvöld með sínum níu mörkum. Amalia Frøland varði 12 skot í marki ÍBV og Ólöf Maren Bjarnadóttir fimm en hún átti frábæra innkomu hjá Eyjakonum.
Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 14 mörk, Birna Berg Haraldsdóttir 9, Ásdís Halla Hjarðar 4, Agnes Lilja Styrmisdóttir 3, Birna María Unnarsdóttir 2, Britney Emelie Florianne Cots 2, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 1, Amelía Dís Einarsdóttir 1, Birna Dís Sigurðardóttir 1, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 1.
Fjórði leikur liðanna fer fram á Ásvöllum, laugardaginn 25. apríl kl. 15:00. Með sigri getur ÍBV tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu gegn Val.