ÍBV komið í 8-liða úrslit
ÍBV sigraði ÍR í kvöld 31-22 í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikarsins. Eyjamenn voru virkilega sannfærandi í leiknum og skein baráttugleðin af þeim. ÍR-ingar skoruðu fyrsta mark leiksins og leiddu 1-3 eftir 6. mínútna leik en ÍBV náði að jafna og eftir 10. mínútna leik var staðan orðin 5-4 fyrir ÍBV og leiddu þeir sem eftir var fyrri hálfleiks en mest komust þeir í 12-7. ÍR- ingar náðu þó aðeins að saxa á forskotið en ekki nóg og í hálfleik var staðan 13-11 ÍBV í vil.
Eyjamenn byrjuðu seinni hálfleik af miklum krafti og komust í 19-12, en stemmningin í liðinu var frábær og Hvítu Riddararnir héldu fjörinu upp í stúkunni. Eyjamenn voru alltaf með yfirhöndina það sem eftir lifði leiks og voru lokatölurnar 31-22.
�?að var virkilega gaman að sjá strákana spila í kvöld, baráttuviljinn var mikill og áhorfendur hrifust með en það hefur verið ábótavant á tímabilinu.
Mörk ÍBV skoruðu þeir: Grétar �?ór Eyþórsson 8, Agnar Smári Jónsson 6, Andri Heimir Friðriksson 5, Theodór Sigurbjörnsson 4, Einar Sverrisson 2, Guðni Ingvarsson 2, Hákon Daði Styrmisson 2, Dagur Arnarsson 1 og Svavar Kári Grétarsson 1.
Kolbeinn Arnarsson varði 16 skot í leiknum.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.