ÍBV tapaði á heimavelli gegn Fram
Úr leiknum á Hásteinsvelli í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV tók á móti Fram í lokaumferð Bestu deildar kvenna á Hásteinsvelli í dag þar sem gestirnir úr Fram unnu 2–3 sigur eftir að hafa lent 2–0 undir.

ÍBV byrjaði leikinn mjög vel og komst tveimur mörkum yfir á fyrstu fimmtán mínútunum. Allison Patricia Clark kom ÍBV í 1–0 eftir aðeins sjö mínútur þegar hún skoraði af stuttu færi. Nafna hennar, Allison Lowrey, tvöfaldaði forystu ÍBV á 12. mínútu. Allison Clark átti þá sendingu í gegn á Lowrey sem skoraði örugglega.

Hildur María Jónasdóttir minnkaði muninn fyrir Fram eftir tæplega hálftíma leik með góðu skoti fyrir utan teig. Staðan var því 2–1 í hálfleik.

Fram byrjaði síðari hálfleikinn af krafti og jafnaði leikinn á upphafsmínútunum með glæsilegu marki frá Brookelynn Paige Entz. Taylor Marie Hamlett skoraði svo þriðja mark Fram, og þar með sigurmark leiksins, á 59. mínútu. Niðurstaðan því 2–3 tap hjá ÍBV á heimavelli.

ÍBV er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með 27 stig. Stjarnan getur með sigri á mánudaginn farið upp fyrir þær. Fram verður í neðri hlutanum þegar deildinni verður skipt. Þær eru í sjöunda sæti með 22 stig.

ÍBV 2 – 3 Fram

1-0 Allison Patricia Clark (‘7 )

2-0 Allison Grace Lowrey (’12 )

2-1 Hildur María Jónasdóttir (’28 )

2-2 Brookelynn Paige Entz (’48 )

2-3 Taylor Marie Hamlett (’59 )

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði á heimavelli gegn Fram
ÍBV byrjar Olís deildina á sigri
Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Tvöföld ÍBV-veisla í dag
Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.