ÍBV upp í þriðja sæti - Unnu Stjörnuna á Hásteinsvelli
Eyjakonur fagna einu af mörkum liðsins í leiknum í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og Stjarnan mættust í 15. umferð Bestu deildar kvenna á Hásteinsvelli í kvöld. Leiknum lauk með 3-2 sigri ÍBV. Með sigrinum komust Eyjakonur upp fyrir Stjörnuna og eru nú í þriðja sæti deildarinnar með 24 stig. Stjarnan er í sæti fyrir neðan með 23 stig.

Leikurinn var jafn fyrstu mínúturnar en Eyjakonur tóku yfir leikinn nokkuð fljótt. Þær náðu forystunni eftir tæpar fimmtán mínútur þegar Allison Grace Lowrey skoraði eftir sendingu Eddu Daggar Sindradóttur. Aðeins mínútu síðar tvöfaldaði Ágústa María Valtýsdóttir forystu ÍBV. Boltinn barst þá til hennar inn á teig stjörnunnar og setti hún boltann í fjærhornið. Stjarnan minnkaði muninn á 22. mínútu leiksins þegar Murielle Tiernan skoraði af stuttu færi eftir sendingu frá Huldu Hrund Arnarsdóttur. Staðan 2-1 í hálfleik.

Spennandi lokamínútur

ÍBV byrjaði síðari hálfleikinn af krafti og juku forskot sitt á upphafsmínútunum. Allison Grace Lowrey skoraði þriðja mark ÍBV og sitt annað í leiknum á 52. mínútu. ÍBV fékk þá hornspyrnu sem Ágústa María Valtýsdóttir tók og eftir mikinn darraðadans inn á teignum datt boltinn fyrir Allison Lowrey sem kom boltanum í netið. 

Eyjakonur voru nánast með öll völd á vellinum en síðustu 20 mínúturnar sóttu Stjörnukonur í sig veðrið. Þær minnkuðu muninn í 3-2 á 77. mínútu með marki frá Fanney Lísu Jóhannesdóttur. Stjarnan fékk dauðafæri á lokamínútum leiksins til að jafna leikinn en Jakobína Hjörvarsdóttir fékk frían skalla inn á markteig en náði ekki að stýra honum á markið. Lokatölur leiksins 3-2 og frábær heimasigur ÍBV í höfn. 

15. umferð Bestu deildar kvenna

  • Þróttur R. 3 – 2 Valur
  • Breiðablik 1 – 0 Grindavík/Njarðvík
  • Fram 4 – 6 FH
  • ÍBV 3 – 2 Stjarnan
  • Víkingur R 0 – 3 Þór/KA

 

Nýjustu fréttir

Gabríel Ari gerir tveggja ára samning við ÍBV
Skora á stjórnvöld að eiga jákvætt samtal við ferðaþjónustuna
Fallið frá kröfu um að minnka rampinn
Stór og spennandi tímamót hjá yngstu nemendunum 
Lítil kraftur í veiðunum en skipin lönduðu fullfermi
Landsmót lúðrasveita haldið í Vestmannaeyjum
Hauststarfið að hefjast hjá Pílufélagi Vestmannaeyja
Fyrirvaralaus uppsögn kennara hjá Vestmannaeyjabæ ólögmæt
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.